Jón sleppur ekki alveg við hælið.

Hæ hæ.

Jón Þór er búin að vera slappur með verki þar sem brisið er en allar prufur eru fínar og engin Brisbólga í gangi sem er fínt, hugsanlega er hann með magabólgur og vonandi fer hann að hressast.

Við erum að fara út 14. feb til Newcastle í nokkra daga hann er að fara í forskoðun fyrir beinmergðskiptin og það er búið að velja fyrir hann gjafa sem er með nákvæmlega sömu vefjaflokka og hann, einnig búi að fá sömu veirur og allles. Sá besti sem er til fyrir hann.

Já og svo er þorrablótið um helgina er farinn að hlakka til.

Heyrums seinna.

Kveðja Sævör.


Sævarður útskrifaður.

Hæ hæ.

img_5498.jpg

Góð helgi er að baki, Sævarðu útskrifaðist með BS gráðu í Stærðfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Við samglöddumst með honum og fórum út að borða á Argentínu þvílík veisla. Gamla settið gisti á hóteli og alles. Kósí helgi.

Jón Þór og  Snædís kusu frekar að fara að Gufuskálum með Pjakki (björgunarsveitinni) og æfa þar rústabjörgun og sig og áttu þau einnig góða helgi.

Jón Þór skráði sig í minni skipstjórnar réttindi í fjarnám og er svona að byrja í því, búin að viða að sér námsefni og kortum þannig að útgerðarstjórinn getur vonandi róið í sumar á strandveiðum.

Við vorum í borginni í gær, Snædís hjá tannlækni og Jón Þór hitti Ásgeir það voru teknar blóðprufur og svona smá tékk. Ásgeir segir að Newcastle menn vilja fá Jón út í rannsóknir eftir einhverjar vikur áður en hann fer í mergskiptinn en þetta kemur allt í ljós.

Heyrums seinna.

kveðja Sævör.   


Ferðinni út frestað.

Hæ hæ.

Já það er búið að fresta ferðinni til Newcastle með Jón Þór við förum ekki fyrr en í Mars er talað um, engin ákveðin dagsetning. Jón Þór er byrjaður í skólanum (FSN) því það er ekki gott að hangsa og gera ekkert á meðan beðið er. Ástæðan er ágæt því það koma nokkrir merggjafar til greina og verið er að leita af besta mögulega gjafanum sem er neikvæður með ákveðnar veirur og bakkteríur.

Það er vika í að Sævarður útskrifist frá Háskóla Reykjavíkur með BS nám í stærðfræði. Gamlasettið skellir sér í borgina til að vera viðstödd útskrift frumburðarins en Jón Þór og Snædís kjósa frekar að fara að Gufuskálum með Pjakk. 

Ég og Jón erum byrjuð í ræktinni, það er Jón fór með mig í ræktina þetta er bara fínt búin að fá þokkalegar harðsperrur og ég held að ég muni bara koma til ;) Heyrumst seinna.Kveðja Sævör
 

 


Gleðileg Jól og farsælt komandi ár til ykkar.

313_947590.jpg img_2067.jpg Kæru ættingjar og vinir Gleðileg Jól og farsælt komandi ár til ykkar. Við fjölskyldan þökkum fyrir stuðningin á árinu sem er að líða, við munum taka á móti 2010 með bjartsýni og von um að það færi okkur gleði og hamingju. Kveðja frá okkur Sævör, Einar, Sævarður, Jóhannes Fannar, Jón Þór o img_5321_947608.jpg g Snædís. img_1934_947599.jpg

Það styttist í að Jón Þór fari út.

Hæ hæ
Hann Ásgeir hringdi í gær það var að koma póstur frá Newcastle Jón Þór fer út í beinmergsskiptin annað hvort 25 jan. eða 1 feb. og fær merginn 19 eða 26 feb við áttum eki von á að fara svona fljótt en ég er glöð að það líður ekki of langur tími því það tíminn skiptir ekki máli þetta verður alltaf erfitt og sérstalega að fara aftur út því það er svo stutt síðan Valdimar dó og sökknuðurinn er djúpur og sár.
Kveðja Sævör

Á ekki að fara að blogga.

Þú hefur ekki bloggað í marga daga mamma á ekki að fara að blogga? Ég var búin að ákveða að Valdimar hefði nú engan áhuga á blogginu en þarna kom í ljós að hann fylgdist alltaf með bæði hvað ég og þið skrifuðuð. Það er ekki einfalt að skrifa inn á bloggið núna og er búið að taka mig marga daga að byrja, hann Valdimar er dáinn þetta er svo óraunverulegt, engar strokur engin faðmlög ekkert eingöngu söknuður. Svo er það vaninn, að kíkja inn í herbergið hans þegar það er lokuð hurð til að athuga með kallinn.Ég skil ekki tilganginn og á örugglega ekki að skilja hann að Valdimar skuli hafa staðið frammi fyrir dauðanum einu sinni og sigrast á honum en svo þegar von er um betra líf hverfi hann á braut.Ég er sátt við að hann reyndi að leita betra lífs þótt það hafi farið svona, vegir guð eru órannsakanlegir.Ég vil þakka öllum sem studdu við bakið á okkur með góðum kveðjum, heimsóknum og hlýhug til okkar í fjölskyldunni.Lífið heldur áfram og ég mun skrifa inn á bloggið þegar við á Jón Þór er ákveðinn í að fara út í mergskipti einnig og það er margt skemmtilegt um að vera í fjölskyldunni þannig að við heyrumst seinna.

Valdimar er kominn heim.

Hæ hæ

img_3957_913955.jpg

Við fjölskyldan þökkum kærlega fyrir allar samúðarkveðjurnar frá ykkur.

Valdimar verður jarðsunginn á laugardaginn 26. sept. n.k. kl.14.00 frá Grundarfjarðarkirkju.

Kveðja frá fjölskyldunni.

Sævör, Einar, Sævarður, Jóhannes Fannar, Jón Þór og Snædís Ólafía. 


Hann Valdi kallinn kvaddi okkur í dag.

Sum stríð eru erfiðari en önnur Valdimar kvaddi í dag þennan heim og héldur á vit nýrra ævintýra, hann var sáttur við sjálfan sig að hafa leitað eftir betra lífi og brosið á vörum hans í kvöld fullvissaði okkur um að ákvörðun hans væri sú eina rétta.

Við fjölskyldan þökkum kærlega fyrir skylaboðin, símhringingar, bænirnar og alla umhyggju fyrir okkur í þessu stríði.
Kveðja Sævör Einar og börn.

Valdimar hafði gaman af öllum athugasemdunum.


Það er hátt fjall að klífa.

Hæ elsku fjölskylda, vinir og þið öll sem hugsið til okkar takk kærlega fyrir góðar kveðjur og takk fyrir að hugsa til okkar.
Valdimar er enn að berjast í gær þurfti hann að fara í aðgerð því það var búið að blæða aftur í þvagblöðruna, hann misti mikið blóð og er kominn á fullan stuðning öndunarvélarinnar aftur, honum er enn haldið sofandi og blóþrystingurinn er mjög óstöðugut. Það eru lika góðar fréttir beinmergurinn er 100% gjafans og það eru engin merki um höfnun á nokkurn hátt, það á smá saman að fara að minka ónæmisbælinguna þannig að mergurinn ætti að dafna betur og hjálpa til við sýkinguna sem eru í Valda núna. Kallinn er ekkert að gefast upp hann berst við hvert áfallið á eftir öðru.

Takk fyrir okkur.
Heyrumst seinna.
Kveðja Sævör, Einar og Valdimar


Hvert lítið skref er áfangi.

Hæ hæ
Valdimari er enn haldið sofandi, blóðþrystingurinn er enn að falla og er mjög óstöðugur lungun eru batnandi og verið er að skola út úr þvagblöðrunni ennþá. Hann er tengdur við nýrnavél allann sólarhringinn og ekki er hægt að sjá hvort nýrun séu að virka fyrr en hætt verður að skola út þvagblöðruna. Hann er baráttu jaxl sem er enn að berjast og við höldum fast í vonina.
Kveðja Sævör og Einar og takk fyrir stuðninginn

Næsta síða »

Höfundur

Sævör Þorvarðardóttir
Sævör Þorvarðardóttir
Mamma ætlar að halda þessu bloggi úti á meðan við bræðurnir erum í undirbúning fyrir væntanleg beinmergsskipti sem nunu vera gerð í Newcatle á Englandi. Kveðja Valdimar og Jón Þór
Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 49
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 411
  • Frá upphafi: 198626

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband