Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
13.3.2010 | 11:40
Yndislegur dagur í gær.
Það var viðburðaríkur dagur í gær við skelltum okkur í Hólminn þ.e. ég, Jón Þór og Einar og hittum Sumarliða (til vonandi tengdapabba hans Jóhannesar) hann leifði Jóni að kafa og hafði fengið leifi til að vera í sundlauginni. Þvílík gleði ég set bara inn myndir því til staðfestingar því orðin lýsa ekki upplifuninni hjá Jóni.
Í gærkveldi fórum við á tónleika sem Snædís var að spila á, en hún er í Lúðrasveitinni, þemað var bíó tónlist og spiluðu margir góðir gestir líka með sveitinni og já þetta var frábær, ég fékk hroll þegar krakkarnir spiluðu hvert lagið á eftir öðru. Yndisleg upplifun.
Nú er bara að klára að pakka fyrir Newcastle því það verður flogið í fyrramálið ég ætla að vera duglegri að blogga þegar við komum út og munið að það er alltaf gaman að lesa fréttir og kveðjur frá ykkur.
Takk fyrir og heyrumst, set inn myndir í albúm.
Kveðja Sævör
9.3.2010 | 11:00
Það fer að koma að mergskiptunum.
Hæ hæ
Við förum út 14 mars með kallinn hann Jón Þór þannig að það fer að líða að mergskiptunum hjá honum.
Síðustu helgi var hann í borginni og kláraði að taka pungaprófið (skipstjórnarréttindi undir 12 m) hann skellti sér á BSH og let vökva sig til hressingar og galvaskur í prófið á laugardagsmorgni, hringdi síðan ánægður með sig eftir prófið og sagði að þetta væri í blóðinu á honum.
Hér framundan er heljar helgi árshátíð í Grunnskólanum og Lúðrasveitin er með tónleika kl. 20.00 á föstudagskvöld, það er mjög spennandi efni á dagskrá hjá þeim þ. e. Velkomin í Bíó kvikmyndatónlist.
Mig hlakkar til sjáumst sem flest.
Kveðja Sævör
23.2.2010 | 20:21
Góð helgi að baki.
Hæ hæ.
Við skemmtum okkur konunglega á Þorrablóti Karlakórsins það er alltaf gott að koma heim á Sigló. Einar og Jón Þór fóru á snjósleða með Árna á meðan mína ástkæru saumaklúbb systur heilsuð upp á mig heima hjá Gillu. Takk fyrir mig stelpur. Við kíktum á Gunnu Bínu og Lóu og Halla og Jón Þór eyddi laugardagskvöldinu heima hjá Jóu og Halla.
Já og það eru komnar dagsetningar við förum út 14 mars Jón Þór fær lyfjalínu í sig 15 mars og niðurbrotið byrjar þann 17 mars og síðan á nýi mergurinn að renna inn þann 26 mars.
Heyrums seinna
Kveðja Sævör
20.2.2010 | 13:39
Gekk vel í Newcastle erum á Sigló.
hæ hæ
Það gekk allt vel í Newcastle Jón Þór fékk góða skoðun og er talin vel undirbúinn fyrir mergskiptin. Það er komin dagsetning fyrir mergskiptin hann fær nýja merginn 26 mars og við förum út einhversstaðar í kringum 10 mars þannig nú fer að styttast í þetta.
Við erum á Sigló núna og það á að skella sér á þorrablótið hjá karla kórnum hér er snjór og það kom að því að við sæjum vetur. Árni Einar og Jón þór eru að fara á snjósleða og það verður saumó hittingur hjá Gillu, hlakka til að hitta selpurnar
Heyrums seinna.
Kveðja Sævör.
13.2.2010 | 14:04
Newcastle á morgun.
Hæ hæ.
Það er komið að forskoðuninni fyrir mergskiptin við fljúgum út í fyrramálið og verðum fram á fimmtudag. Jón Þór kemur til með að hitta hina ýmsu sérfræðinga sem kanna líkamlegt ástand hans. Ég reikna með að við fáum endanlega dagsetningu úti en það var talað um 6 til 7 vikur frá forskoðun. Snædís verður hjá Önnu og Bjögga fósturforeldrum sínum í góðu yfirlæti og Gosi skellir sér í sveitasæluna.
Það verður skrítið að fara út aftur en það er engin sérstakur kvíði fyrir þessari ferð Jón Þór er reyndar búin að vera slappur en hann á örugglega eftir að komast í gegnum þetta.
Heyrumst seinna.
Kveðja Sævör.
2.2.2010 | 20:51
Jón sleppur ekki alveg við hælið.
Hæ hæ.
Jón Þór er búin að vera slappur með verki þar sem brisið er en allar prufur eru fínar og engin Brisbólga í gangi sem er fínt, hugsanlega er hann með magabólgur og vonandi fer hann að hressast.
Við erum að fara út 14. feb til Newcastle í nokkra daga hann er að fara í forskoðun fyrir beinmergðskiptin og það er búið að velja fyrir hann gjafa sem er með nákvæmlega sömu vefjaflokka og hann, einnig búi að fá sömu veirur og allles. Sá besti sem er til fyrir hann.
Já og svo er þorrablótið um helgina er farinn að hlakka til.
Heyrums seinna.
Kveðja Sævör.
Vinir og fjölskylda | Breytt 4.2.2010 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2010 | 15:38
Sævarður útskrifaður.
Hæ hæ.
Góð helgi er að baki, Sævarðu útskrifaðist með BS gráðu í Stærðfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Við samglöddumst með honum og fórum út að borða á Argentínu þvílík veisla. Gamla settið gisti á hóteli og alles. Kósí helgi.
Jón Þór og Snædís kusu frekar að fara að Gufuskálum með Pjakki (björgunarsveitinni) og æfa þar rústabjörgun og sig og áttu þau einnig góða helgi.
Jón Þór skráði sig í minni skipstjórnar réttindi í fjarnám og er svona að byrja í því, búin að viða að sér námsefni og kortum þannig að útgerðarstjórinn getur vonandi róið í sumar á strandveiðum.
Við vorum í borginni í gær, Snædís hjá tannlækni og Jón Þór hitti Ásgeir það voru teknar blóðprufur og svona smá tékk. Ásgeir segir að Newcastle menn vilja fá Jón út í rannsóknir eftir einhverjar vikur áður en hann fer í mergskiptinn en þetta kemur allt í ljós.
Heyrums seinna.
kveðja Sævör.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.1.2010 | 13:35
Ferðinni út frestað.
Hæ hæ.
Já það er búið að fresta ferðinni til Newcastle með Jón Þór við förum ekki fyrr en í Mars er talað um, engin ákveðin dagsetning. Jón Þór er byrjaður í skólanum (FSN) því það er ekki gott að hangsa og gera ekkert á meðan beðið er. Ástæðan er ágæt því það koma nokkrir merggjafar til greina og verið er að leita af besta mögulega gjafanum sem er neikvæður með ákveðnar veirur og bakkteríur.
Það er vika í að Sævarður útskrifist frá Háskóla Reykjavíkur með BS nám í stærðfræði. Gamlasettið skellir sér í borgina til að vera viðstödd útskrift frumburðarins en Jón Þór og Snædís kjósa frekar að fara að Gufuskálum með Pjakk.
Ég og Jón erum byrjuð í ræktinni, það er Jón fór með mig í ræktina þetta er bara fínt búin að fá þokkalegar harðsperrur og ég held að ég muni bara koma til ;) Heyrumst seinna.Kveðja Sævör
31.12.2009 | 14:50
Gleðileg Jól og farsælt komandi ár til ykkar.
Kæru ættingjar og vinir Gleðileg Jól og farsælt komandi ár til ykkar. Við fjölskyldan þökkum fyrir stuðningin á árinu sem er að líða, við munum taka á móti 2010 með bjartsýni og von um að það færi okkur gleði og hamingju. Kveðja frá okkur Sævör, Einar, Sævarður, Jóhannes Fannar, Jón Þór o
g Snædís.
Vinir og fjölskylda | Breytt 2.1.2010 kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.12.2009 | 09:01
Það styttist í að Jón Þór fari út.
Hann Ásgeir hringdi í gær það var að koma póstur frá Newcastle Jón Þór fer út í beinmergsskiptin annað hvort 25 jan. eða 1 feb. og fær merginn 19 eða 26 feb við áttum eki von á að fara svona fljótt en ég er glöð að það líður ekki of langur tími því það tíminn skiptir ekki máli þetta verður alltaf erfitt og sérstalega að fara aftur út því það er svo stutt síðan Valdimar dó og sökknuðurinn er djúpur og sár.
Kveðja Sævör
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.3.): 52
- Sl. sólarhring: 65
- Sl. viku: 612
- Frá upphafi: 201567
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Nýjustu athugasemdir
- Það fer að koma að mergskiptunum.: Gangi ykkur vel. 12.3.2010
- Það fer að koma að mergskiptunum.: Til hamingju með pungaprófið frændi. Gangi þér allt í haginn vi... 11.3.2010
- Það fer að koma að mergskiptunum.: Til hamingju með útskriftarpiltana...BS gráður og pungapróf !!!... 11.3.2010
- Það fer að koma að mergskiptunum.: Gangi ykkur vel kæra fjölskylda. 11.3.2010
- Gekk vel í Newcastle erum á Sigló.: Gangi ykkur vel elskurnar. Kveðja af Skaganum 28.2.2010












